Renault vill blanda sér í keppni toppliðanna fjögurra
Renaultstjórinn Eric Boullier segist vongóður um að lið hans geti nartað í hælana á toppliðum Ferrari, McLaren, Mercedes og Red Bull starx í byrjun nýrrar keppnistíðar. Hann segir þó afar erfitt að spá einhverju um getu liðanna.
„Það hefur verið erfitt að ráða í smáatriðin við reynsluakstur í vetur og hvernig við eigum að bera okkur saman við hina því við vitum ekki hvernig þau gengu í raun til leiks,“ segir Boullier í aðdraganda fyrsta kappakstursins, sem fram fer í Barein komandi sunnudag.
„Við tókum þá stefnu að keyra með bensínþungan bíl í hverri einustu bílprófanalotu. Það töldum við bestu leiðina til að skilja og betrumbæta bílinn. Hvað getu varðar vona ég til að við séum í námunda við toppliðin fjögur,“ bætir Boullier hinn franski við.
Ökuþórinn Robert Kubica er því sammála að erfitt sé að segja til um styrkleika Renault. Hann segir liðinu þó hafa farið fram og allt miði í rétta átt. Þá komi ýmsar nýjungar í bílinn fyrir fyrsta mót sem ekki hafa verið prófaðar við reynsluakstur.
„Toppliðin virðast mjög jöfn en einhver þeirra hafa tvímælalaust dulið fulla getu sína við reynsluakstur og verða einnig með uppfærslur í Barein,“ segir Kubica.






