Barrichello klár fyrir 18. keppnistíðina í formúlu-1
Rubens Barrichello átti einstaklega góðu gengi að fagna með Brawnliðinu í fyrra. Nú er hann genginn til liðs við Williams og segist klár til keppni 18. árið í röð í formúlu-1.
Barrichello vann tvo kappakstra í fyrra og varð þriðji í stigakeppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra. Hann segist ganga mjög kappsfullur til leiks í ár.
„Ég er í sjöunda himni við upphaf 18. keppnistíðar minnar. Ég er í miklu betri æfingu líkamlega en nokkru sinni og áhuginn mikill. Ég er mjög ánægður hjá Williams. Hér hef ég aðlagast vel og líður eins og ég hafi verið hér undanfarin fimm ár.
Við lögðum margan kílómetrann að baki við bílprófanir í vetur. Hvað uppsetningar, endingartraust og keyranleika mótorsins varðar höfum við staðið okkur vel. Bílnum fleygði fram og liðið hefur undirbúið mig með þeim hætti þannig að ég er klár á öllu frammi fyrir fyrsta mótinu.
Mér finnst ég vera sterkur og er bjartsýnn en það er mjög erfitt að átta sig á því hvar við stöndum. Við verðum að bíða og sjá, keppnistíðin verður annars frábær, með nýjum liðum, nýjum ökumönnum og nýjum reglum,“ segir Barrichello.








