Glock taldi öryggi meira hjá Virgin en Renault og Sauber

Glock milli aksturslota við bílprófanir í Barcelona í lok febrúar. stækka

Glock milli aksturslota við bílprófanir í Barcelona í lok febrúar. reuters

Þýski ökuþórinn Timo Glock segir sér hafa staðið til boða að keppa fyrir bæði Renault og Sauber í ár. Hann hafi hins vegar talið atvinnuöryggi meira hjá nýja Virginliðinu og því tekið það fram yfir hin tvö.

Er Toyota ákvað að draga sig út úr formúlunni þótti liggja í loftinu að Glock færi til Renault og gerðist liðsfélagi Roberts Kubica. En Sauber var einnig valkostur, að sögn blaðsins Frankfurter Rundschau.

„Íþróttalega séð hefðu þessi lið verið mjög góður valkostur,“ játar Glock í samtali við blaðið. „En við Sauber blasti löng bið eftir því hvort liðið fengi að vera með í formúlu-1.

Renault var ofarlega á óskalistanum en síðan kom tímabil vegna yfirtöku á liðinu. Ég hugsaði sem svo og sagði við sjálfan mig, að ef hlutirnir gengju upp hjá hvorugu liðinu stæði ég uppi atvinnulaus. Það geðjast mér ekki, ég er fyrir nýjungar og spennandi hluti,“ bætir Glock við.

Hann réð sig því til Virginliðsins sem er eitt nýju liðanna sem mætir til leiks í formúlu-1 í ár.

Virginbíllinn hefur staðið öðrum bílum talsvert að baki við bílprófanir.

Virginbíllinn hefur staðið öðrum bílum talsvert að baki við bílprófanir.

Virginbíllinn við reynsluakstur í Barcelona.

Virginbíllinn við reynsluakstur í Barcelona. mbl.is/virginf1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is