Heidfeld: Bíll Red Bull „augljóslega“ bestur

Nick Heidfeld. stækka

Nick Heidfeld. reuters

Að mati Nick Heidfeld, reynsluökuþórs Mercedes, standa ökuþórar Red Bull best að vígi þegar ný vertíð gengur í garð um komandi helgi. Hann segir bíl Red Bull greinilega þann besta við upphaf vertíðar.

Við reynsluakstur í febrúar hefur þótt blasa við að lítill sem engin munur væri á bílum Red Bull, Ferrari, McLaren og Mercedes. Síðast nefnda liðið er talið hægast þessara en á því kann að verða breyting fljótt.

Mercedes mun taka í notkun í Barein um helgina nokkuð sem þýskir fjölmiðlar kalla „ofurdreifir“ en þar er um að ræða nýja gerð loftdreifis sem er undir afturenda bílsins og hefur áhrif á skilvirkni straumfræði bílsins.

Þá var nýr framvængur prófaður með mikill leynd við beinlínuakstur á flugvelli í Englandi í byrjun vikunnar. Um akstur bílsins sá Heidfeld. Eftir að hafa fylgst með reynsluakstri í vetur er hann ekki á því að bílar toppliðanna séu eins jafnir og haldið er fram.

„Red Bull er augljóslega besti bíllinn,“ segir hann við vikuritið Auto Motor und Sport. „Það er næstum skelfilegt hversu auðveldlega [Sebastian] Vettel og [Mark] Webber eiga með að keyra hann í botni,“ bætir hann við.

Heidfeld telur meir að segja að Red Bull hafi ekki sýnt á öll spil sín með því að aka bílnum hlöðnum meira bensíni en mótherjarnir við reynsluakstur í febrúarmánuði.

 
Schumacher við reynsluakstur fyrir Mercedes.

Schumacher við reynsluakstur fyrir Mercedes. reuters

Heidfeld prófaði nýjan framvæng á laun í vikunni.

Heidfeld prófaði nýjan framvæng á laun í vikunni. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is