Sauber gæti átt eftir að verða óþægur ljár í þúfu

Pedro de la Rosa við bílprófanir á Sauberbílnum í vetur. stækka

Pedro de la Rosa við bílprófanir á Sauberbílnum í vetur. reuters

Sauberliðið gæti átt eftir að verað toplliðumk formúlunnar óþægur ljár í þúfu á komandi keppnistíð. Því halda sérfræðingar Bridgestone fram eftir greiningu sína á niðurstöðum bílprófana vetrarins.

Þeir segja að Sauberbíllinn fari einstaklega vel með dekkin, samanborið við bíla annarra liða. Kvarnist mun minna úr dekkjunum undir Saubernum en bílum Ferrari, McLaren, Red Bull og Mercedes.

Sauberinn hefur reynst ferðgóður við reynsluakstur í vetur og þessar upplýsingar auka á vonir liðsmanna um góðan árangur í mótum.

Það getur komið sér vel í tvennum skilningi að dekkjum hraki seint. Í fyrsta lagi gerir það liði kleift að nota mýkri og þar með hraðskreiðari dekk en keppinautarnir í þriðju og síðustu lotu tímatökunnar.

Í öðru lagi ætti það að stuðla að jafnari hraða eftir því sem á keppni líður, en bílhraði hefur viljað lækka eftir því sem dekk slitna meira. Kemur það sér einstaklega vel í ár þar sem ökumenn verða að passa upp á dekk sín vegna banns við bensíntöku í keppni.

Hirohide Hamashima, yfirmaður þróunarmála hjá Bridgestone, segir að nær engu muni á hvernig dekkin nýtast toppliðunum fjórum. Síðan sé Sauber í sérflokki og það gefi liðinu sérstaka taktíska möguleika.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is