Síðasta ár Bridgestone

Ökumenn hafa færri dekk til skiptana en áður. stækka

Ökumenn hafa færri dekk til skiptana en áður. mbl.is/renaultf1

Japanski dekkjaframleiðandinn Bridgestone hefur verið einn um að sjá keppnisliðum formúlu-1 fyrir dekkjum undir bílana. Samningur sá rennur út í ár og hyggst Bridgestone ekki sækjast eftir framlengingu.

Þær breytingar verða á dekkjamálum í ár, að framdekk bílanna verða mjórri til að jafna veggrip milli fram- og afturdekkja. Þá hefur uppbyggingu og efnablöndu dekkjanna verið breytt með tilliti til þess að bensínstopp eru ekki leyfð og bílarnir því mun þyngri en venjulega þegar lagt er af stað í kappakstur.

Á vertíðinni verða þrenns konar þurrdekk til boða en aðeins þó tvær þeirra í hverju einstöku móti. Ákveður Bridgestone fyrir hvert mót hvaða tvær dekkjagerðir verða í boði. Mýkri dekkjagerðin á hverjum stað verður einkennd með grænni línu á hlið dekkjanna.

Þá er samkvæmt nýjum reglum fækkað þeim dekkjasettum sem hver ökuþór hefur til afnota á mótshelgi, eða úr sjö settum í sex af aðaltegundinni og fimm sett af valtegundinni.

Engar breytingar verða á fjölda regndekkja, hver ökuþór fær hefur úr þremur settum af fullum regndekkjum að spila og fjórum settum af millidekkjum.


Bridgestone hefur verið eitt um að leggja til dekk frá 2007.

Bridgestone hefur verið eitt um að leggja til dekk frá 2007. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is