Alonso: Viljum vera meistarar í nóvember, ekki í mars

Fernando Alonso stefnir að sigri í fyrsta móti sem ökumaður Ferrari. stækka

Fernando Alonso stefnir að sigri í fyrsta móti sem ökumaður Ferrari.

Fernando Alonso hjá Ferrari sagði blaðamönnum í Barein í dag að hann vildi ekki ráða of mikið úr niðurstöðum bílprófana í vetur og fyllast sjálfstrausti af góðri frammistöðu Ferrarifáksins við þær.

Á grundvelli reynsluaksturs undanfarnar vikur þykir staða Ferrari ætla verða sterk í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra og bílsmiða. Og þótt hann hafi nýlega lýst Ferraribílnum sem besta kappakstursbílnum sem hann hefði nokkru sinni ekið  segist hann ekki geta spáð neinu um hvernig hann stæði gagnvart keppinautunum.

„Við gerum ekki mikinn samanburð á tímunum frá í vetur eða byggjum ekki áætlanir okkar fyrir fyrsta mót á þeim. Við einbeitum okkur að okkar eigin verkefnum og freistum þess að vera eins góðir og unnt er fyrir fyrsta mót ársins,“ sagði Alonso í Barein í dag.

„Ég held fjögur lið, Red Bull, Mercedes, McLaren og Ferrari geti öll talist sigurstrangleg um helgina og í fyrstu mótum vertíðarinnar. Sauber og Force India eru einnig með góða bíla.

Við munum gera okkar besta, erum vel undir keppnina búnir en viljum verða heimsmeistarar í nóvember, ekki í mars. Markmiðið er að vinna titilinn, það er ekki leikur einn og við þurfum að leggja hart að okkur næstu 10 mánuðina til þess,“ bætti meistarinn fyrrverandi við.

„Ég held ég sé klár til að keppa til sigurs. Ég hef undirbúið mig vel í vetur og vonandi verðum við í aðstöðu til að sigra,“ sagði Alonso.


Ökumenn Ferrari í ár, Massa (t.v.) og Alonso.

Ökumenn Ferrari í ár, Massa (t.v.) og Alonso. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is