Bíll McLaren stenst skoðun

Lewis Hamilton reynsluekur 2010 bíl McLaren. stækka

Lewis Hamilton reynsluekur 2010 bíl McLaren. mbl.is/mclarenf1

Keppnisbíll McLaren stóðst skoðun eftirlitsmanna Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) í Barein í dag. Þar með er afturvængur hans löglegur, en Red Bull og Ferrari höfðu látið í ljós efasemdir um það.

Tæknifulltrúi FIA, Charlie Whiting, rannsakaði og mældi afturvæng McLarenbílsins sérstaklega í morgun og gaf að því loknu grænt ljós á notkun hans. Hafði Whiting fylgst með hönnun og þróun bíls McLaren í vetur og ráðfærði liðið sig nokkrum sinnum við hann um lögmæti hönnunarinnar.

Bæði Red Bull og Ferrari töldu að McLarenliðið notaði sérstaka og ólöglega útfærslu á kæliturni vélarhúss bílsins til að hafa áhrif á loftflæði um vænginn í þeim tilgangi að auka beinlínuhraða hans. Því hefur nú verið hafnað af FIA.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is