Rosberg segist munu hafa við Schumacher

Rosberg (t.h.) með Schumacher í Barein í dag. stækka

Rosberg (t.h.) með Schumacher í Barein í dag. reuters

Nico Rosberg keppir með Mercedes og hefur Michael Schumacher sem liðsfélaga. Kveðst Williamsþórinn fyrrverandi bjartsýnn á að hann standi uppi í hárinu á meistaranum fyrrverandi.

Rosberg segist hlakka til þess að fá að spreyta sig og sanna gegn Schumacher, sem hefur unnið heimsmeistaratitil ökumanna sjö sinnum. Lauk hann síðustu bílprófanalotu vetrarins, í febrúarlok í Barcelona, með betri tíma en Schumacher.

Hvað sem því líður þá hefur frammistaða Rosberg í vetur alveg fallið í skuggann af endurkomu Schumacher til keppni í formúlu-1 eftir þriggja ára hlé. Hann segir það samt ekkert raska ró sinni.

„Ég geng mjög bjartsýnn til keppni. Mér líður einstaklega vel í bílnum, fullur sjálfstrausts. En baráttan verður engu að síður mjög erfið því ég er með fremur öflugan liðsfélaga. Við verðum að bíða og sjá hvernig það kemur út,“ sagði Rosberg i Barein í dag.


Nico Rosberg í Barein í dag.

Nico Rosberg í Barein í dag. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is