Hamilton: Útilokað að spá um rásröðina

Hamilton á ferð í Barein í dag. stækka

Hamilton á ferð í Barein í dag. reuters

Lewis Hamilton hjá McLaren segist eftir æfingarnar í Barein í dag enga hugmynd hafa um hvers megi vænta í tímatökunum á morgun. Á æfingunum náði hann annars vegar sjötta besta tíma og síðar þeim næstbesta.

Hamilton segir liðin enn hafa lítið að byggja á við samanburð sín á milli. „Í hreinskilni sagt hef ég enga hugmynd,“ svaraði hann spurningu hvort hann gæti unnið ráspól á morgun.

„Bíllinn virkar vel en ég veit ekki hvað aðrir voru að gera. Sumir gætu hafa verið léttari, aðrir þyngri. Við gætum verið alvarlega hæggengir eða glettilega hraðskreiðir. Um þetta vitum við ekkert fyrr en út í tímatökurnar er komið,“ bætti heimsmeistarinn frá 2008.

Hamilton gekkst við því að McLaren hefði áhyggjur af dekkjasliti eftir æfingarnar. Brautarhiti hafi verið mikill og kvörnun úr báðum dekkjagerðunum mikil. Hann segist þó ekki búast við nema einu dekkjastoppi í kappakstrinum á sunnudag. En bætir við að til að fara sem best með dekkin en fá samt sem mest út úr þeim þurfi ökuþór nánast að breyta um aksturstækni á hverjum hring.


Gemsinn ónáðar Hamilton í bílskúrareininni í Barein í dag.

Gemsinn ónáðar Hamilton í bílskúrareininni í Barein í dag. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is