Massa: Reyndum ekki við topptíma

Massa í Barein í dag. stækka

Massa í Barein í dag. reuters

Felipe Massa hjá Ferrari var sáttur að æfingum dagsins loknum í Barein. Hann ók hraðar en liðsfélagi hans Fernando Alonso, setti sjöunda besta tímann, var 1,1 sekúndu frá besta tímanum.

Þótt aksturstímar á föstudögum einkennist af óþekktri taktík einstakra liða og dylji bensínhleðslur bílanna sagðist Massa vera ánægður með daginn.

„Við unnum mikið í því að finna gott jafnvægi í bílnum uppstilltum fyrir keppni og bárum saman dekkjagerðirnar tvær við mismunandi bensínáfyllingar. Við botnkeyrðum aldrei, leituðumst aldrei eftir að setja topptíma,“ sagði Massa eftir æfingarnar.

„Ég er ánægður með það sem við höfum séð og upplifað í dag, jafnvel þótt erfitt sé að fá rétta mynd af hversu samkeppnisfærir við erum,“ bætti hann við. „Við munum fá harða keppni frá mörgum liðum en við undirbúum okkur undir sunnudaginn eins vel og frekast er unnt,“ sagði Massa einnig.

Kappaksturinn er sá fyrsti sem hann þreytir frá í Ungverjalandi í júlí í fyrrasumar, en þar slasaðist hann alvarlega. 

Massa keppir í fyrsta sinn frá í Búdapest júlí í fyrra.

Massa keppir í fyrsta sinn frá í Búdapest júlí í fyrra. reuters

Massa (t.v.) hefur félagsskap og keppni af Alonso í ár.

Massa (t.v.) hefur félagsskap og keppni af Alonso í ár. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is