Prost dómari í Barein

Prost (t.h.) og Schumacher voru á sínum tíma keppinautar. stækka

Prost (t.h.) og Schumacher voru á sínum tíma keppinautar.

Það nýmæli hefur verið tekið upp af hálfu Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) til að bæta dómgæslu og eftirlitsstörf á mótum formúlu-1, að á hverjum kappakstri verður fyrrverandi ökuþór kvaddur til leiks sem dómari.

Franski ökuþórinn Alain Prost er sá fyrsti sem kallaður er til aðstoðar við dómgæsluna, í Barein um helgina. Með þessu fyrirkomulagi er ætlunin að auka á gagnsæi og sanngirni í öllum ákvörðunum FIA-dómaranna, að því er segir á breska akstursíþróttavefsetrinu autosport.

Prost vann heimsmeistaratitil ökumanna á sínum tíma fjórum sinnum og tefldi síðar fram eigin keppnisliði í formúlu-1. Hann keppti 199 sinnum á árabilinu 1980 til 1993 með m.a. Williams, McLaren og Ferrari. Þrjá titlana vann hann með McLaren, 1985, 1986 og 1989 og þann fjórða með Williams 1993.

Prost keypti síðan Ligierliðið franska árið 1997 og tefldi því fram undir eigin nafni. Það dó drottni sínum í ársbyrjun 2002 og komst aldrei á rásmarkið það ár, eins og til hafði staðið.

Prost, sem er 55 ára, hefur haldið sér í góðri æfingu. Undanfarin ár hefur hann m.a. keppt með góðum árangri í ískappakstri og er tvöfaldur franskur meistari í þeirri grein.

Fleiri gamlir meistarar dæma

Fyrir liggur að fleiri gamlir meistarar muni dæma á formúlumótum í ár. Damon Hill, meistari ökuþóra 1996, hefur samþykkt að dæma tvisvar og þreytir hann frumraun sína í Mónakó. Annar Englendingur, Johnny Herbert, mun dæma í ótilgreindum mótum síðar á vertíðinni.

Þá munu bæði Heinz-Harald Frentzen og Alexander Wurz hafa samþykkt að gegna dómarastarfi á mótum í ár.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is