Rosberg fljótastur á seinni æfingunni í Barein

Rosberg ráðfærir sig við Ross Brawn liðsstjóra í Barein í dag. stækka

Rosberg ráðfærir sig við Ross Brawn liðsstjóra í Barein í dag. reuters

Nico Rosberg hjá Mercedes setti besta tímann á seinni æfingu dagsins í Barein. Fjórir fljótustu bílarnir eru allir knúnir Mercedesvélum. Annar varð Lewis Hamilton  en milli þeirra McLarenfélaganna, hans og Jenson Button, varð Michael Schumacher hjá Mercedes.

Rosberg settist í toppsæti tímalistans eftir 20 mínútur og dvaldi þar í 70 mínútur til viðbótar. Ógerlegt er annars að ráða í brautartíma því ökuþórar virtust með misjafnlega mikið bensín um borð, allt eftir því hvað þeir voru að prófa með tilliti til kappakstursins á sunnudag.

Rosberg getur verið sáttur því hann ók hraðar en Schumacher á báðum æfingunum í dag.

Bæði lið Red Bull áttu við mótlæti að stríða á æfingunni. Hjá Mark Webber bilaði drifskaft eftir aðeins fimm hringi og Sebastian Vettel setti aðeins fimmta besta tímann en tvisvar missti hann bílinn út úr brautinni í lokabeygju hennar.

Sebastien Buemi hjá Toro Rosso var inni í bílskúr alla æfinguna meðan glímt var við bilun í afturenda bílsins. Félagi hans Jamie Alguersuari var aðeins hársbreidd frá því að klessa á vegg er hann flaug út úr brautinni í einni lotu sinni. 

Nico Hulkenberg hjá Williams endaði með sjötta besta tímann, einu sæti ofar en Felipe Massa hjá Ferrari. Félagi Massa, Fernando Alonso, setti níunda besta tímann.

Heikki Kovalainen hjá Lotus setti besta tíma nýju liðanna og félagi hans Jarno Trulli var rétt á eftir. Bilið í toppbílana minnkaði, en Kovalainen var tæpum 5,5 sekúndum frá tíma Rosberg.

Bruno Senna gat loks ekið Hispaniabílnum af alvöru. Bíl liðsfélaga hans, Karun Chandhok, tókst liðinu hins vegar ekki að gera kláran til aksturs og kemst hann því ekki í brautina fyrr en á morgun.

Minna fór fyrir Adrian Sutil hjá Force India en í morgun er hann setti besta tímann. Á seinni æfingunni varð hann 1,9 sek. á eftir Rosberg í 12. sæti. 

Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Bil Hri.
1. Rosberg Mercedes 1:55.409 23
2. Hamilton McLaren 1:55.854 +0.445 22
3. Schumacher Mercedes 1:55.903 +0.494 23
4. Button McLaren 1:56.076 +0.667 28
5. Vettel Red Bull 1:56.459 +1.050 18
6. Hulkenberg Williams 1:56.501 +1.092 26
7. Massa Ferrari 1:56.555 +1.146 30
8. Petrov Renault 1:56.750 +1.341 26
9. Alonso Ferrari 1:57.140 +1.731 25
10. de la Rosa Sauber 1:57.255 +1.846 24
11. Kobayashi Sauber 1:57.352 +1.943 27
12. Sutil Force India 1:57.361 +1.952 29
13. Barrichello Williams 1:57.452 +2.043 21
14. Liuzzi Force India 1:57.833 +2.424 29
15. Kubica Renault 1:58.155 +2.746 29
16. Alguersuari Toro Rosso 1:59.799 +4.390 31
17. Webber Red Bull 2:00.444 +5.035 12
18. Kovalainen Lotus 2:00.873 +5.464 23
19. Trulli Lotus 2:00.990 +5.581 14
20. Glock Virgin 2:02.037 +6.628 3
21. di Grassi Virgin 2:02.188 +6.779 21
22. Senna Hispania 2:06.968 +11.559 17
23. Buemi Toro Rosso 1
24. Chandhok Hispania 0
Rosberg stígur upp úr SLS Amg bíl frá Mercedes en á einum slíkum ók hann ...

Rosberg stígur upp úr SLS Amg bíl frá Mercedes en á einum slíkum ók hann þó ekki í Barein.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is