Schumacher: „Ég er ryðgaður“
Michael Schumacher var mjög ánægður með getu Mercedesbílsins í Barein í dag. Sjálafur kveðst hann ennþá vera nokkuð ryðgaður hvað aksturstækni varðar.
Á báðum æfingum varð Schumacher að sætta sig við að miklu yngri liðsfélagi hans væri hraðskreiðari. Nico Rosberg setti besta brautartímann á seinni æfingunni en þar varð Schumacher þriðji, milli McLarenþóranna Lewis Hamilton og Jenson Button.
Schumacher sagði eftir æfingarnar að enn væri svigrúm til að bæta sig þegar um væri að ræða að keyra aðeins einn fljúgandi hring, eins og í tímatökum. Munaði tæpri hálfri sekúndu á þeim Rosberg í slíkum akstri í dag.
„Við gerðum góða hluti síðdegis eftir að hafa glímt við nokkurn jafnvægisvanda í bílnum í morgun. Hann var miklu betri á seinni æfingunni en ég er ennþá nokkuð ryðgaður á tímatökuhring. Ég þarf að komast aftur inn í þá rútínu,“ sagði Schumacher.
„Í löngum lotum virkaði bíllinn fínt, ég er ánægður með daginn og er tilbúinn fyrir helgina,“ bætti heimsmeistarinn fyrrverandi við.








