Sögulegur Rússi
Nýliðinn Vitaly Petrov hjá Renault brýtur blað í sögu formúlunnar um helgina því hann er fyrsti rússneski ökumaðurinn til að keppa í formúlu-1. Hann þótti standa sig vel er hann setti áttunda besta tímann af 24 á seinni æfingu dagsins.
Petrov var þá aðeins 1,3 sekúndum frá besta brautartímanum, sem Nico Rosberg hjá Mercedes setti. Og hann var sjö sætum framar en öllu reyndari liðsfélagi, Robert Kubica. Útlit er þó fyrir að bíll Petrovs hafi verið mun bensínléttari.
„Það var frábær tilfinning að keyra í brautinni. En verkefnin að sinna voru mörg og því þýddi ekki að njóta sælunnar, heldur koma sér að verki,“ sagði Petrov að æfingunum loknum.
Hann sagði að við nokkur smávægileg vandamál hefði verið að stríða en úr þeim yrði bætt fyrir morgundaginn og bíllinn betrumbættur. „Tímatakan, mín fyrsta í formúlu-1, verður áhugaverð og ég hlakka mjög til hennar,“ bætti hann við.








