Alonso fljótastur á lokaæfingunni í Barein

Alonso með Vettel rétt á eftir sér í Barein. stækka

Alonso með Vettel rétt á eftir sér í Barein. reuters

Fernando Alonso hjá Ferrari ók hraðast á lokaæfingunni fyrir tímatökurnar í Barein en æfingunni var að ljúka. Nico Rosberg hjá Mercedes ók næsthraðast og var 0,269 sekúndum lengur með hringinn. Þriðja besta tíma setti Mark Webber á Red Bull.

Michael Schumacher setti fjórða besta tímann og undirstrikar þar með ágæti Mercedesbílsins en varð að sætta sig við það þriðju æfinguna í röð, að Rosberg hafði betur í innbyrðis keppni þeirra.

Sebastian Vettel hjá Red Bull varð fimmti  og Felipe Massa hjá Ferrari sjötti. Með því tylla ökumenn Ferrari, Mercedes og Red Bull sér í sex efstu sætin. Athygli vekur að heimsmeistarinn Jenson Button setti aðeins sjöunda besta tímann og liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð einungis í 12. sæti. Gat hann ekki ekið undir lok æfingarinnar vegna bilunar í McLarenbílnum.

Timo Glock hjá Virgin ók hraðast ökumanna nýju liðanna þriggja sem ráku lestina. Indverjinn Karun Chandhok hjá Hispania getur ekki tekið þátt í tímatökunum né kappakstrinum á morgun þar sem ekki tókst að gera bíl hans ökufæran fyrir æfingarnar þrjár.

Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Bil Hri.
1. Alonso Ferrari 1:54.099 14
2. Rosberg Mercedes 1:54.368 +0.269 13
3. Webber Red Bull 1:54.500 +0.401 15
4. Schumacher Mercedes 1:54.533 +0.434 13
5. Vettel Red Bull 1:54.646 +0.547 16
6. Massa Ferrari 1:54.739 +0.640 14
7. Button McLaren 1:55.000 +0.901 14
8. Kubica Renault 1:55.331 +1.232 15
9. Liuzzi Force India 1:55.432 +1.333 11
10. Hulkenberg Williams 1:55.461 +1.362 13
11. Sutil Force India 1:55.521 +1.422 13
12. Hamilton McLaren 1:55.860 +1.761 8
13. de la Rosa Sauber 1:56.063 +1.964 14
14. Barrichello Williams 1:56.259 +2.160 15
15. Buemi Toro Rosso 1:56.295 +2.196 17
16. Alguersuari Toro Rosso 1:56.504 +2.405 16
17. Kobayashi Sauber 1:56.530 +2.431 13
18. Petrov Renault 1:56.811 +2.712 16
19. Glock Virgin 1:59.173 +5.074 10
20. Kovalainen Lotus 1:59.789 +5.690 15
21. Trulli Lotus 2:01.259 +7.160 5
22. Senna Hispania 2:04.001 +9.902 11
23. di Grassi Virgin 0 tími 2
24. Chandhok Hispania ók ekki
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is