Schumacher nýtur allsnægta

Bónus fyrir stig er ekki hár hjá Sauber, enda nýtur liðið lítilla styrkja. stækka

Bónus fyrir stig er ekki hár hjá Sauber, enda nýtur liðið lítilla styrkja. reuters

Þrátt fyrir engan aðalstyrktaraðila hefur Peter Sauber samþykkt að borga föstum starfsmönnum Sauberliðsins lítils háttar  kaupauka vegna frammistöðu þess í keppninni um heimsmeistaratitla bílsmiða í ár.

Að sögn svissneska blaðsins Blick er ekki um fúlgur fjár að ræða, heldur 25 svissneska franka á mann fyrir hvert stig sem vinnst, eða á fjórða þúsund krónur fyrir stigið.

Og verður miðað við gamla stigakerfi formúlunnar, ekki hið nýja í ár sem veitir stig fyrir fleiri sæti og mun fleiri en áður fyrir fremstu sætin. Því verður eftirtekjan mun minni en ef miðað væri við nýja stigakerfið.

Blaðið blandar Michael Schumacher hjá Mercedes inn í umfjöllun sína um kjaramál Sauberliðanna og segir þar á ferð önnur fjárráð og meiri. Hafi hann til íveru einkavillu með einkaströnd og einkakokki. Fyrir það þurfi hann að greiða 6.000 evrur á sólarhring, eða sem svarar á aðra milljón krónur nóttina.
Schumacher hefur efni á að lifa flott.

Schumacher hefur efni á að lifa flott. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is