Button of varfærinn með dekkin

Button klár í slaginn í Barein. stækka

Button klár í slaginn í Barein. reuters

Heimsmeistarinn Jenson Button hjá McLaren sagðist ánægður eftir kappaksturinn í Barein þótt hann hæfi titilvörnina með því að ná einungis sjöunda sæti. Hann sagðist þó hafa haldið of mikið aftur af sér til að spara dekkin.

Button er á því að hann hefði getað sótt djarfar fram að dekkjahléinu því dekkin hefðu enst mun betur en áætlað var. Þess vegna hefði allt eins verið hægt að taka stoppið síðar.

Hann sagði það svekkjandi að hafa ekki komist fram úr fyrrverandi meistara, Michael Schumacher hjá Mercedes, eftir að hafa sótt verulega á hann á síðustu hringjunum fyrir dekkjastoppið.

Button vann sig altjent fram úr Mark Webber hjá Red Bull í stoppunum. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton vann sig einnig fram úr keppinaut, Nico Rosberg hjá Mercedes, í stoppunum.

Heimsmeistarinn sagði McLarenbílinn hafa skort vængpressu á miðkafla brautarinnar til að hægt væri að leggja til atlögu við Schumacher.


Button á ferð í kappakstrinum í Barein.

Button á ferð í kappakstrinum í Barein. reuters

Button og Webber háðu stöðubaráttu alla keppnina.

Button og Webber háðu stöðubaráttu alla keppnina. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is