Massa ánægður með endurkomuna

Massa fagnar í Barein. stækka

Massa fagnar í Barein. reuters

Jafnvel þótt hann hafi tapað fyrir liðsfélaga sínum í Barein í dag segist Felipe Massa hjá Ferrari ánægður með að hafa sett mark sitt á fyrsta kappaksturinn eftir að hann snýr aftur til keppni í framhaldi af slysinu í Búdapest í fyrra.

Massa varð á undan Ferrarifélaga sínum Fernando Alonso í tímatökunum og hóf keppni af öðrum rásstað. Ræsing hans var ekki eins góð og hjá Alonso sem vann sig fram úr Massa í tveimur fyrstu beygjunum. Hann var því í betri stöðu er bíll Sebastian Vettel feilpústaði og Ferrarimennirnir komust fram úr.

En þrátt fyrir allt segist Massa ánægður með annað sætið eftir langa fjarveru frá keppni eftir höfuðmeiðslin sem hann hlaut í ungverska kappakstrinum í júlí í fyrra.

„Í fyrsta lagi finnst mér frábært að vera hér, þökk sé að allt sé frábært. Að vera hér með samkeppnisfæran bíl og fara í gegnum keppnina á góðum hraða alla tíð. Þökk sé drottni að ég er í lagi og þökk sé öllum sem hjálpuðu mér gegnum erfiða tíma.

Kappaksturinn var frábær fyrir okkur. Vissulega tókst ræsingin ekki vel hjá mér, tapaði mikilvægri stöðu til Fernando í fyrstu beygju. En eftir það var kappaksturinn frábær bæði á mjúku dekkjunum og þeim hörðu,“ sagði Massa.

Hann dró Alonso uppi eftir að þeir komust fram úr Vettel en segir að þá hafi bólað á hitavanda í vélinni og bensíneyðslan jókst. Því hafi hann slakað á til að spara bensínið. 

„Það var ekkert meira að gera. Vandamál Vettels urðu okkur að láni, við það komumst við fram úr og unnum aukastig. Og það var líka lán að Lewis Hamilton var ekki hraðskreiðari í lokin,“ bætti Massa við.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is