Schumacher saknaði tilþrifa

Schumacher kvaðst hafa skemmt sér vel í keppninni í Barein. stækka

Schumacher kvaðst hafa skemmt sér vel í keppninni í Barein. reuters

Michael Schumacher segist hafa notið endurkomunnar í formúlu-1 í Barein en kvaðst óttast að herfræði vegna banns við bensínstoppum myndi ekki bjóða upp á tilþrifamikla keppni í ár.

Schumacher varð sjötti á mark í Barein, rúmum 40 sekúndum á eftir sigurvegaranum Fernando Alonso hjá Ferrari. Hann átti tiltölulega þægilegan dag en sagði kappaksturinn samt hafa verið „ágætis skemmtun“.

„Þetta snýst um ræsinguna og eftir það er bara að halda sínum hraða og gera ekki mistök. Framúrakstur er í grundvallar atriðum útilokaður, nema mönnum verði á akstursmistök. Það er það sem við okkur blasir við þær aðstæður sem herfræðing byggist á,“ sagði Schumacher við BBC-sjónvarpið í Barein.

„En hvað sem því líður þá var þetta ágætis skemmtun, sérstaklega framan af. Núna verðum við að vinna okkur upp á við til að draga þá uppi sem á undan eru,“ bætti Schumacher við.

Hann sagðist hafa átt í erfiðleikum með dekkin þegar langt var liðið á hvora aksturslotu. Það væri þó bara partur af því að aðlagast keppninni eftir þriggja ára fjarveru frá keppni.

Schumacher var sáttur við sjötta sæti.

Schumacher var sáttur við sjötta sæti. reuters

Schumacher í kappakstrinum í Barein.

Schumacher í kappakstrinum í Barein. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is