Vettel: Bilun kostaði sigur

Vettel fagnar ráspólnum í Barein í gær. stækka

Vettel fagnar ráspólnum í Barein í gær. reuters

Sebastian Vettel hjá Red Bull er á því að hann hefði farið með sigur af hólmi í Barein hefði bilun ekki orðið í pústgrein bílsins er 20 hringir af 49 voru eftir.

Vettel virtist ráða ferðinni í mótinu en hann hóf keppni af ráspól og var aldrei ógnað meðan bíllinn var í lagi. Hélt hann stöðu sinni eftir dekkjaskiptin og allt þar til að vélin skilaði ekki lengur fullu afli.

Eftir kappaksturinn játaði Vettel að það væru vonbrigði að hafa ekki unnið kappaksturinn, eftir að hafa verið hraðskreiðastur alla helgina. „Þetta var leitt en hvað getur maður gert?“ sagði hann í spurnartón.

„Á heildina litið var þetta jákvætt mót að biluninni frátalinni. Við vorum í alla staði hraðskreiðastir frá því á laugardagsmorgni. Við vorum með undirtökin í kappakstrinum og herfæði okkar var fín, ég vissi hvernig dekkin voru.

Við höfðum góða stjórn á dekkjunum og bremsunum, allt gekk eins og vel smurð vél. Ég veit ekki hvers vegna ég missti afl, en það brotnaði eitthvað í vélarverkinu. Til allrar hamingju gat ég haldið áfram en við áttum í raun og veru að vinna sigur,“ sagði Vettel.

Hann sagði að það hefði verið beiskur biti að kyngja þegar hann áttaði sig á því að bíllinn myndi ekki lengur duga til sigurs. „Það var ekki auðvelt. Maður er í forystu og þarf einungis að koma bílnum í höfn. Og þá verður bilunin, sem maður vissi ekki í fyrstu hvort myndi versna eftir því sem á leið.

Undir lokin virtist bíllinn jafna sig en bilunin kostaði okkur mikið. En 12 stig voru mikilvæg samt,“ sagði Vettel.

Vettel var ekki ógnað í ræsingunni.

Vettel var ekki ógnað í ræsingunni. reuters

Vettel virtist hafa góð tök á Ferrariþórunum meðan bíllinn virkaði sem skyldi.

Vettel virtist hafa góð tök á Ferrariþórunum meðan bíllinn virkaði sem skyldi. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is