Massa: Verður erfiðara í Melbourne

Massa í keppninni í Barein. stækka

Massa í keppninni í Barein. reuters

Felipe Massa er á því að Ferrari muni ekki eiga jafn auðveldan dag í næsta kappakstri, í Melbourne í Ástralíu eftir hálfan mánuð, og í Barein í gær. 

Massa varð bæði annar í tímatökunum í Barein og í öðru sæti á endamarki. Liðsfélagi hans Fernando Alonso tók fram úr honum í ræsingunni og vann síðan kappaksturinn.

Massa keppti í Barein í fyrsta sinn eftir að hann hlaut alvarleg meiðsl í kappakstrinum í Búdapest í Ungverjalandi í fyrrasumar og var ánægður með útkomuna.

„Mig grunar að næsta keppni verði mun erfiðari og mjög jöfn. Við sáum í dag að líklega eru fleiri lið afar sterk. Red Bull er með öfluga bíla sem verða erfiðir viðureignar. Og McLaren gæti verið í slagnum og ef til vill Mercedes. Kannski gerast óvæntir hlutir. Við vitum alla vega að slagurinn verður erfiður.

Við þurfum að átta okkur vel á hvernig dekkin gagnast og finna út hvernig keppnisáætlunin geti orðið skilvirkust; hvar við getum grætt á henni og hvar hún gefur minna.

Aðstæður verða allt aðrar í næsta móti og því erfitt að átta sig á hvað þar gæti verið í vændum. Brautin er allt öðru vísi en hér,“ sagði Massa eftir kappaksturinn í Barein.


Massa á undan Rosberg í Barein.

Massa á undan Rosberg í Barein. reuters

Massa var alla keppnina í humátt á eftir liðsfélaga sínum Alonso.

Massa var alla keppnina í humátt á eftir liðsfélaga sínum Alonso. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is