Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 15.3.2010
| 20:36
| Uppfært
16.3.2010
17:22
Vandi Vettels ónýtt kerti
Við skoðun á vélinni í bíl Sebastians Vettel hjá Red Bull eftir kappaksturinn í Barein kom í ljós, að það var ekki bilun í pústgrein sem olli því að bíllinn missti afl í kappakstrinum.
Vettel var með örugga forystu og var aldrei ógnað er bíllinn missti skyndiega afl er kappaksturinn var rúmlega hálfnaður, eða á 33 hring af 49.
Við það féll hann á nokkrum hringjum niður í fjórða sæti en tókst að halda vel á spöðunum eftir það og missti ekki fleiri fram úr sér.
Við skoðun á mótornum kom í ljós, að pústgreinin var í lagi. Það sem sveik hins vegar Vettel var kerti í einum strokka mótorsins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin








