Vilja fjölga dekkjastoppum

Webber þjónustaður í Barein. stækka

Webber þjónustaður í Barein. reuters

Hörð gagnrýni birtist á bloggsíðum og víða á netinu þar sem kvartað var undan skorti á tilþrifum í fyrsta formúlumóti ársins, í Barein.Bæði forsvarsmenn liða og ökumenn segja að bregðast verði við og t.d. knýja hvern ökumann til að stoppa til dekkjaskipta a.m.k. tvisvar.

Þá telja forsvarsmenn liða eins og Nick Fry hjá McLaren að alltof lítill munur sé á dekkjagerðunum tveimur. Mjúku dekkin séu í raun hörð - ekki mjúk - og hafi því ekki slitnað neitt námundar nærri því sem búist var við fyrirfram. Hann telur að þar sé svigrúm til breytinga sem skipt gætu máli.

Michael Schumacher hjá Mercedes sagði eftir kappaksturinn að framúrakstur væri nær útilokaður og Mark Webber hjá Red Bull kvartaði undan því líka; sagðist hafa verið í skotti á bíl allan tímann en aldrei átt möguleika að leggja til atlögu við hann.

Þar sem bensínstopp hafa verið upprætt var skilvirkasta keppnisáætlunin sú að stoppa aðeins einu sinni vegna dekkjaskipta. Fry segir að þótt Barein brautin sé þekkt fyrir að bjóða ekki upp á tilþrif megi ekki loka augunum fyrir skorti á návígum.

Fry sagði kappaksturinn hafa verið langt frá því að vera spennandi. „Við þurfum að skoða málið og ákveða hvað þarf að gera við þessu,“ sagði Fry.

Red Bull stjórinn Christian Horner styður tillögur um að skilyrt verði að stoppa a.m.k. tvisvar til dekkjaskipta. Sömu skoðunar eru Eddie Jordan, liðseigandinn fyrrverandi sem er formúluskýrandi hjá BBC sjónvarpinu.

„Nei, það var ekki nóg um framúrakstur og ég vildi sjá sem skyldu að skipta tvisvar um dekk,“ sagði Jordan.


Frá ræsingunni í Barein.

Frá ræsingunni í Barein. reuters

Alonso stoppar í Barein.

Alonso stoppar í Barein. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is