Bernie biður menn að halda rónni

Bernie Ecclestone. stækka

Bernie Ecclestone. reuters

Formúlualráðurinn Bernie Ecclestone biður menn að fara ekki á límingunum þótt fyrsta mót ársins hafi sætt gagnrýni fyrir að vera leiðinlegt. Hann segir stóráhyggjur af stöðu íþróttarinnar ástæðulausar.

Nick Fry, annar æðsti stjórnandi Mercedesliðsins, fór fyrir fjölda liðsstjóra sem hvöttu til skjótra viðbragða í framhaldi af kappakstrinum í Barein vegna þess hversu óspennandi hann hafi verið.

Það yrði m.a. að gera til að nýta sem best þann aukna áhuga sem væri á formúlunni vegna mikilla tilfærslna ökumanna milli liða og nýrra keppenda, þ. á m. Michaels Schumacher.

Ecclestone biður menn að skoða málið í rólegheitum í stað þess að grípa til aðgerða í flýti. Nær væri að bíða og sjá hvernig fyrstu fjórum mótum ársins reiddi af og ákveða síðan þegar keppnin kæmi til Evrópu á ný hvort ástæða væri til breytinga.

„Það hefur engin taugaveiklun gripið um sig, formúlan er ekki í kreppu. Ég held við getum ekkert gert strax og eigum ekki að kýla breytingar fram. Við skulum heldur skoða málið eftir fjarlægu mótin fjögur, eftir Kínakappaksturinn,“ segir Ecclestone.

Hann segist á því að möguleikarnir á meiri spennu í Barein hafi farið forgörðum þar sem liðin hafi notað tækifærið til að venjast nýjum keppnisreglum. Héðan í frá ættu þau að geta teflt ögn djarfar og þar með boðið upp á meiri tilþrif.

Ecclestone spyr hvort ekki væri nær að láta liðinum í té eina dekkjagerð í móti, til dæmis aðeins þau mýkstu. Það eitt myndi knýja þau til tveggja stoppa í keppni. Hann sakar liðin um að hugsa fyrst og síðast um sig sjálf og möguleika sína á að sigra.

„Ég átti fund með liðunum [fyrir keppnistímabilið] og reyndi að útskýra fyrir þeim um hvað greinin er - þetta er kappakstur til að skemmta fólki, en ekki tölvuleikfimi og spurningin um að aka einn hring sem hraðast,“ segir hinn aldni alráður formúlu-1.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is