Coulthard vill fleiri stopp og breytingar á dekkjum

David Coulthard fer ekki í launkofa með skoðanir sínar. stækka

David Coulthard fer ekki í launkofa með skoðanir sínar. reuters

David Coulthard fyrrverandi ökuþór McLaren og Red Bull hefur skipað sér í hóp með þeim sem telja að breyta þurfi dekkjum og skylda lið til a.m.k. tveggja dekkjastoppa til að fjörga keppnina í formúlu-1.

Eins og svo mörgum öðrum fannst Coulthard keppnin tilþrifasnauð í fyrsta móti ársins, í Barein síðastliðinn sunnudag. Hann skaut í því sambandi föstum skotum að Max Mosley, fyrrverandi forseta Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) vegna margra breytinga sem hann beitti sér fyrir. 

Coulthard segir breytingarnar ekki hafa skilað betri kappakstri.

„Ég vona að Max Mosley hafi notið kappakstursins í Barein úr fílabeinsturni sínum,“ skrifar hann í dálki sínum í blaðinu Daily Telegraph. „Takmörkun snúningshraða mótoranna við 18.000 snúninga á mínútu,bann við bensíntöku í keppni, staðlaðir gírkassar og mótorar, einn dekkjaframleiðandi; allt að frumkvæði hans á forsetastóli FIA virðist litlu hafa skilað ef marka má keppnina í Barein.

Ég vil ekki hljóma og vænn því ég er sannfærður um að við aðrar aðstæður - svo sem rigningu í Interlagos - gæti keppnin hafa orðið eins frábær og við vonuðum öll. En í raun var eins og um skrúðgöngu að ræða, prófun á endingartrausti fremur en kappakstur,“ segir Coulthard.

Hann segir liðin eiga sinn skerf skammarinnar vegna aðgerðarleysis. Þau hafi átt þess kost sl. vetur að gera tvö stopp að skilyrði en látið tækifærið ónotað. „Sum liðanna héldu sína bíla myndu fara betur með dekkin en aðra bíla og vildu því ekki skrifa upp á tveggja stoppa tillöguna.

Það var klassískt dæmi um tæknimenn sem gleyma keppnisskapinu og fagtæknin verður ofan á. Við skulum vona að þeir hugsi skýrar úr þessu,“ segir Coulthard.

 
Coulthard segir breytingar undanfarinna ára í engu hafa bætt keppnina.

Coulthard segir breytingar undanfarinna ára í engu hafa bætt keppnina. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is