Domenicali: Ferrari þurfti að sigra snemma

Alonso og Massa á leið til tvöfalds sigurs Ferrari í Barein. stækka

Alonso og Massa á leið til tvöfalds sigurs Ferrari í Barein. reuters

Stefano Domenicali, liðsstjóri Ferrari, segir að sigur Fernando Alonso í fyrsta móti ársins, í Barein, sé afar mikil uppörvun fyrir lið hans eftir öll vandræðin og mótlæti í fyrra.

Ferrari afskrifaði seinni hluta keppnistímabilsins 2009 á miðju ári til að einbeita sér að undirbúningi vertíðarinnar í ár með hönnun og þróun nýs keppnisbíls. Domenicali  segir að sú kvöð hafi hvílt á Ferrari að sýna snemma fram á að sú ákvörðun hafi verið rétt.

Og með tvöföldum sigri Alonso og Felipe Massa telur Domenicali að liðið frá Maranello hafi mátað þá aðila sem lýstu strax í fyrra efasemdum um að liðið væri að gera rétt með því að hætta þróun 2009-bílsins.

„Kappaksturinn var ákaflega mikilvægur liðinu. Eftir erfitt ár í fyrra og afar þungbærar ákvarðanir voru menn í skotgröfum og reiðubúnir að skjóta á okkur. Það er hluti af tilverunni. Úrslitin sýna að við breyttum rétt. Og ég verð að þakka liðsmönnum öllum heima í Maranello sem lagt hafa svo hart að sér og stóðu saman gegn mótlætinu.

Það var okkur mikilvægt að sjá, að bíllinn er góður í grunninn til að þróa frekar, bæði fyrir tímatökur og kappakstur. Keppnistímabilið er mjög langt og við verðum að vera jarðbundnir því ég geri ráð fyrir að hin liðin öll sæki djarft fram og verði harðir í horn að taka.“

Domenicali segir erfitt að benda á eitthvert eitt lið sem erfiðasta keppinaut Ferrari í ár. McLaren bílarnir hafi t.a.m. sýnt verulega aukinn hraða í kappakstrinum miðað við tímatökurnar. „Ég ber virðingu fyrir öllum liðunum. Red Bull og McLaren eru sterk og spurningin er hver verður fyrr með nýjungar og svo munu dekkin spila sína rullu.

Við sáum í Barein, að liðin eru mjög jöfn að í keppni getur allt gerst. Þess vegna verður keppnistímabilið langt og strangt,“ sagði Ferraristjórinn.


Sigur Alonso var Ferrari kærkominn.

Sigur Alonso var Ferrari kærkominn. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is