Sauber mun breyta liðsheitinu

Engar auglýsingar er að finna á Sauberbílnum. stækka

Engar auglýsingar er að finna á Sauberbílnum. reuters

Peter Sauber ætlar að fara fram á að fá nafni formúluliðsins breytt en þar er enn kennt að hluta til við fyrrverandi eigendur, BMW.

Þrátt fyrir að þýska bílafyrirtækið hafi ákveðið í fyrrasumar að draga sig út úr keppni í formúlu-1 ber liðið formlega enn heitið „BMW Sauber F1 Team“. Sauber keypti það af fyrirtækinu sem keypti liðið af honum 2004.

Sauber fór ekki fram á nafnbreytingu fyrir keppnistímabilið. Slíkar breytingar eru snúnar og gætu jafnvel leitt til þess að lið verði af tekjum vegna sjónvarpsútsendinga en því má liðið ekki við.

Peter Sauber hefur staðfest við breska akstursíþróttaritið Autosport að hann muni fara fram á nafnbreytingu. Einungis sé eftir að ákveða nákvæmlega hvenær farið verður fram á það, en af því verði einhvern tíma á keppnistímabilinu.

Liðið er enn án aðalstyrktaraðila og segir Sauber að útilokað hafi reynst í janúar og febrúar að finna styrktaraðila í röðum stórfyrirtækja. Því væri hann í dag fyrst og fremst að reyna afla sér styrktarfyrirtækja fyrir næsta ár, 2011. Ef það gengi fljótlega gæti allt eins orðið, að liðið yrði kennt við hann þegar í ár.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is