Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 17.3.2010
| 14:34
| Uppfært
19.3.2010
9:21
Kovalainen vill bláu flöggin burt
Heikki Kovalainen hjá Lotus hefur varpað fram þeirri tillögu til að krydda keppnina í formúlu-1, að hætt verði að veifa bláum flöggum og skipa þeim sem orðnir eru hring á eftir að víkja.
Með þessu myndi röð bílanna þéttast, ef fremsti fákur kæmist ekki tafarlaust fram úr hægfara bíl sem orðinn er næstum hring á eftir.
Bláum flöggum er veifað þegar öftustu bílar eru dregnir uppi og þeim þannig skipað að víkja fyrir þeim hraðskreiðari.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin








