Johnnie Walker heldur de la Rosa gangandi

De la Rosa í bílskúr Sauber í Barein. stækka

De la Rosa í bílskúr Sauber í Barein. reuters

Ökuþórinn Pedro de la Rosa hjá Sauber fær styrk úr óvenjulegri átt til að halda sér gangandi í formúlunni. 

Hefur hann endurnýjað samning við fyrirtækið Diageo sem á skosku viskíframleiðsluna Johnnie Walker, eða Jón á röltinu eins og merkið er gjarnan nefnt manna á meðal.

De la Rosa samdi fyrst við fyrirtækið árið 2005 er hann var þriðji ökuþór McLaren. Hann auglýsir veigarnar en veigameira er þó hlutverk hans í kynningarherferð fyrirtækisins gegn því að menn aki undir áhrifum, eftir að hafa fengið sér einn.

Um er að ræða persónulegan samning og því munu tákn Johnnie Walker ekki birtast á auglýsingasnauðum keppnisbíl Pedro de la Rosa. Hann er sagður fá 300.000 evrur fyrir samninginn.


De la Rosa á ferð í Barein.

De la Rosa á ferð í Barein. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is