Mercedes óttaðist að tapa fyrir Red Bull
Mercedes vildi ekki láta Red Bull liðinu í té keppnismótora fyrir árið í ár af ótta við að lið þess myndi tapa fyrir því austurríska. Þessu heldur einn helsti ráðgjafi Red Bull fram, Helmut Marko.
„Þeir vissu að þeir myndu ekki sjá í bílana okkar fyrir rykmekkinum aftur úr þeim. Við myndum hverfa þeim úr augsýn, það vissu þeir,“ segir hinn opinskái Marko.
Þrálátur orðrómur var á kreiki í fyrrasumar þess efnis að Red Bull væri að reyna fá mótora frá Mercedes í stað Renault. Þegar ekkert varð úr því þótti skýringin líklegust sú, að annað hvort liðanna McLaren eða Brawn - eða jafnvel bæði - hefðu lagst gegn því, þar sem það hefði þýtt að fjögur lið væru með Mercedesvélar, sem taldar voru þær bestu í fyrra.
Marko segir sannleikann hljóma öðru vísi; það hafi verið þýski bílsmiðurinn sjálfur sem tekið hafi ákvörðunina um að synja Red Bull um mótora vegna eigin áforma um að taka Brawnliðið yfir og tefla því fram undir eigin merkjum.







