FIA lokar smugu í reglum

Loftdreifir stendur undan afturenda bílanna. stækka

Loftdreifir stendur undan afturenda bílanna. reuter

McLaren, Mercedes og tvö önnur ótilgreind lið verða að breyta loftdreifurunum á neðanverðum afturenda keppnisbílanna fyrir ástralska kappaksturinn. Þar með er lokað á smugu í tæknireglum formúlunnar.

Í hönnunarforsendum er leyft að hafa holu í loftdreifinn fyrir sveif sem notuð er við gangsetningu bílanna. Mál hennar hefur hins vegar ekki verið afmarkað og það hafa lið nýtt sér til að búa hana þannig úr garði að ná fram meiri vængpressu.

Það gengur gegn tilgangi reglunnar og í raun hafa tilteknu liðin haft gatið miklu víðara en þörf er á fyrir mótorsveifina. Það var Brawnliðið sem þróaði þessa útfærslu þegar í fyrra og þótti sýnt, að með því að meitla hana til mátti auka vængpressu svo um munaði.

Bílar liða voru skoðaðir sérstaklega með sveifargatið í huga í Barein og í framhaldi af því hefur FIA tilkynnt fjórum liðum að þau verði að breyta dreifunum fyrir Melbourne.
Brawnliðið fann smuguna sem nú hefur verið lokað.

Brawnliðið fann smuguna sem nú hefur verið lokað. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is