Keppt í Monza út 2016

Barrichello nýtur sigurstundarinnar í Monza 2009. stækka

Barrichello nýtur sigurstundarinnar í Monza 2009. reuters

Ítalíukappaksturinn í formúlu-1 fer í næstu sex skipti fram í Monza. Eigendur brautarinnar hafa framlengt samning um mótshaldið út 2016.

Bernie Ecclestone hefur undanfarið talað um að Róm fái kappakstur á allra næstu árum. Þangað fer þó ekki Ítalíukappaksturinn, allavega ekki næstu sex mót, heldur verður hann áfram þreyttur í brautinni frægu.

Monza hefur verið vettvangur Ítalíukappakstursins í formúlu-1 allar götur frá árinu 1950 nema árið 1980, er hann fór fram í Imola. Kappakstur hefur farið fram í Monza mun lengur, eða frá árinu 1922. 

Samningurinn sem nú hefur verið framlengdur um mótshald í Monza átti að renna út á næsta ári, eftir kappaksturinn 2012.

Síðustu sex mót í Monza hafa jafn margir ökuþórar unnið. Í fyrra fór Rubens Barrichello hjá Brawn með sigur af hólmi. Var það þriðji sigur hans á ferlinum í Monza.


Rubens Barrichello í þjónustustoppi í Monza í fyrra.

Rubens Barrichello í þjónustustoppi í Monza í fyrra. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is