Renault heimilað að uppfæra keppnismótorinn

Petrov fær brátt betri mótor í Renaultinn. stækka

Petrov fær brátt betri mótor í Renaultinn. reuters

Renaultliðið hefur fengið heimild Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) til að gera „fjölda“ umbóta á keppnismótor sínum af fjárhagslegum ástæðum og til að treysta endingu þeirra.

Þessa heimild fær Renault þrátt fyrir að FIA hafi að öðru leyti hafnað óskum um að lið fái að auka afl mótora í þeim tilgangi að skapa meiri jöfnuð vélarframleiðenda.

Renault leitaði til FIA sl. vetur og fór fram á endurbæturnar sem nú hafa verið samþykktar.

Red Bull hefur fengið mótora frá Renault og hélt því fram í vetur, að óréttlátt væri að mótorar væru misjafnlega aflmiklir þrátt fyrir að hönnun þeirra hafi verið fryst um nokkurt skeið. Frystingin hafi bitnað misjafnlega á liðum og því þyrfti að leyfa leiðréttingu þar á, annars myndu bílar með Mercedesvél vinna öll mót ársins.

FIA hefur ekki þótt nægar vísbendingar um ójöfnuð í mótorafli liggja fyrir til að grípa til ráðstafana í þágu leiðréttingar þar á. Því voru ekki allar óskir Renault samþykkar, ekki þær sem talið var að myndu tvímælalaust leiða til aukins mótorkrafts.


Renault á ferð í Barein.

Renault á ferð í Barein. reuter

Renault vélar knýja bíla Red Bull.

Renault vélar knýja bíla Red Bull.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is