Webber: Alonso verðskuldaði sigurinn í Hockenheim

Webber segir Alonso hafa unnið sigur verðskuldað. stækka

Webber segir Alonso hafa unnið sigur verðskuldað. reuters

Mark Webber er á því að Fernando Alonso hjá Ferrari hafi unnið þýska kappaksturinn í Hockenheim verðskuldað. Webber segir jafnframt, að það hafi verið hárrétt hjá Ferrari að beita liðsfyrirmælum - en þar er yfirmaður hans hjá Red Bull, Christian Horner, öndverðrar skoðunar.

Felipe Massa hafði forystu lengst af í Hockenheim en hægði síðan ferðina að fyrirmælum stjórnenda Ferrari svo Alonso gæti farið fram úr og sigrað. Webber segist ganga út frá því að stjórar Ferrari hefðu ekkert aðhafst ef Massa hefði getað ekið á brott frá Alonso. Raunin hafi verið sú, að Massa hafi í raun tafið Alonso.

„Þeir gáfu Felipe líka gott tækifæri til að vinna sigur. Þeir gerðu það allt þangað til hann gat ekki hrist Fernando af sér. Vitaskuld hefur það legið fyrir hjá liðinu að hraðskreiðasti náunginn í brautinni myndi vinna kappaksturinn.Og það var niðurstaðan, sá fljótasti vann,“ bætir Webber við.


Webber og Horner (t.v.) eru ósammála um liðsfyrirmæli.

Webber og Horner (t.v.) eru ósammála um liðsfyrirmæli. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is