Lygilega mikil drottnun

Vettel fagnar pólnum í Búdapest. stækka

Vettel fagnar pólnum í Búdapest. reuters

Sebastian Vettel hjá Red Bull var í þessu að vinna ráspól ungverska kappakstursins í Búdapest og þar með sjöunda pólinn á árinu. Liðsfélagi hans Mark Webber var annar og voru yfirburðir þeirra einfaldlega lygilega miklir. Sín á milli hafa þeir unnið 11 ráspóla á árinu af 12 mögulegum.

Fernando Alonso hjá Ferrari varð þriðji en 1,2 sekúndum lengur með hringinn en Vettel, og 0,8 sekúndum lengur en Webber. Eru það fáheyrðir yfirburðir í tímatökum og staðfestir ágæti Red Bull bílsins á jafn flókinni braut og í Búdapest.

Alonso var eini ökuþórinn auk ökumanna Red Bull til að aka hringinn í Hungaroring í dag á innan við 80 sekúndum.  Við hlið sér í ræsingunni á morgun hefur hann félaga sinn Felipe Massa.

Meðal tíðinda tímatökunnar var að Jenson Button hjá McLaren og Michael Schumacher hjá Mercedes sátu eftir í annarri lotu; komust ekki í keppnina um 10 fremstu sætin á rásmarkinu.

Button varð elleftir og heimsmeistarinn fyrrverandi aðeins fjórtándi. Gerir það frammistöðu hans enn aumlegri að liðsffélagi hans Nico Rosberg varð sjötti og sekúndu fljótari með hringinn.

Þá fagnaði Vitaly Petrov hjá Renault því að leggja liðsfélaga sinn, Roberet Kubica, í fyrsta skipti að velli í tímatökum. Hefur hann keppni af sjöunda rásstað en Kubica sæti aftar. Hefur Petrov aldrei verið framar á rásmarki.

Þetta kemur sér vel fyrir Petrov í tilraunum hans til að halda sæti hjá Renault, en honum hafði verið veittur frestur fram í ungverska kappaksturinn til að sýna sig og sanna. Gangi honum vel á morgun hefur hann styrkt stöðu sína mjög.

Niðurstaða tímatökunnar í Búdapest varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Lota 1 Lota 2 Lota 3
1. Vettel Red Bull 1:20.417 1:19.573 1:18.773
2. Webber Red Bull 1:21.132 1:19.531 1:19.184
3. Alonso Ferrari 1:21.278 1:20.237 1:19.987
4. Massa Ferrari 1:21.299 1:20.857 1:20.331
5. Hamilton McLarens 1:21.455 1:20.877 1:20.499
6. Rosberg Mercedes 1:21.212 1:20.811 1:21.082
7. Petrov Renault 1:21.558 1:20.797 1:21.229
8. Kubica Renault 1:21.159 1:20.867 1:21.328
9. de la Rosa Sauber 1:21.891 1:21.273 1:21.411
10. Hulkenberg Williams 1:21.598 1:21.275 1:21.710
11. Button McLaren 1:21.422 1:21.292
12. Barrichello Williams 1:21.478 1:21.331
13. Sutil Force India 1:22.080 1:21.517
14. Schumacher Mercedes 1:21.840 1:21.630
15. Buemi Toro Rosso 1:21.982 1:21.897
16. Liuzzi Force India 1:21.789 1:21.927
17. Alguersuari Toro Rosso 1:21.978 1:21.998
18. Kobayashi Sauber 1:22.222
19. Glock Virgin 1:24.050
20. Kovalainen Lotus 1:24.120
21. Trulli Lotus 1:24.199
22. di Grassi Virgin 1:25.118
23. Senna Hispania 1:26.391
24. Yamamoto Hispania 1:26.453
Vitaly Petrov hafði ástæðu til að gleðjast eftir tímatökurnar.

Vitaly Petrov hafði ástæðu til að gleðjast eftir tímatökurnar. mbl.is/renaultf1

Drottnun Vettels var ótrúlega mikil.

Drottnun Vettels var ótrúlega mikil. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is