Schumacher óhress með Bensann

Schumacher í Búdapest. stækka

Schumacher í Búdapest. reuters

Michael Schumacher var óhress með keppnisbíl sinn að loknum æfingum gærdagsins í Búdapest. Þrátt fyrir ýmsar nýjungar - þar á meðal nýja botnplötu - átti hann í mesta basli.

Besti brautartími Schumacher í gær var rúmlega hálfri annarri sekúndu lakari en besti tími dagsins. Af þessum sökum var heimsmeistarinn fyrrverandi fremur óhress og enda skiluðu nýjungarnar ekki tilætluðum árangri.

„Gangi bíll vel tekst hringurinn vel en því miður virðist bíllinn okkar ekki mjög góður hér,“ sagði Schumacher eftir að hafa sett aðeins tíunda besta tímann á seinni æfingunni.

„Staðreyndin er sú, að við erum ekki að sýna þann hraða sem við venjulega gerum á föstudögum a.m.k. Við þurfum að finna út hverjar ástæðurnar fyrir þessu eru,“ bætti hann við.

Hann sagðist telja bílinn betri en í breska kappakstrinum í Silverstone en sagði eiginlega brautarinnar í Búdapest ef til vill ekki henta honum.

Mercedes hefur geret sér vonir um góðan árangur í Búdapest eftir slakan árangur í heimakappakstrinum í Hockenheim sl. sunnudag. Þar luku Schumacher og Nico Rosberg keppni í áttunda og níunda sæti.

Schumacher er óhress með hraða bílsins í Búdapest.

Schumacher er óhress með hraða bílsins í Búdapest. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is