Draumur Petrovs breyttist í martröð
Á sama tíma og Robert Kubica hefur keppni á morgun af þriðja rásstað verður liðsfélagi hans hjá Renault, Vitaly Petrov, á aftasta rásstað. Ástæðan eru dæmigerð byrjendamistök í upphafi tímatökunnar í dag.
Ótilneyddur renndi Petrov Renaultinum upp á rennblauta beygjubrík á útleið úr níundu beygju. Með allan bílinn upp á bríkinni missti hann alla rásfestu; Renaultinn snarsnerist eftir brautinni og síðan út fyrir hana og endaði á öryggisvegg.
„Þetta var mjög svekkjandi, það var vatn á bríkinni. Ég gat ekki hreyft bílinn og þar með var tímatakan búin. Þetta var leitt því mér hafði gengið vel fram að tímatökunni og draumurinn var að verða meðal 10 fremstu á rásmarkinu.
Við þetta verð ég að búa og einbeita mér að morgundeginum og reyna vera jákvæður. Nýi búnaðurinn til að rjúfa loftflæði um afturvænginn virkar vel. Bíllinn er því hraðskreiður á beinu köflunum og ég ætti að geta tekið fram úr öðrum.
Þá er veðurútlitið mjög óvíst og við vitum að í rigningu getur allt gerst,“ sagði Petrov eftir tímatökuna.






