Kubica öflugur öllum stundum

Kubica í tímatökunni í Spa. stækka

Kubica í tímatökunni í Spa. reuters

Robert Kubica hjá Renault missti annað sætið á rásmarki á síðustu sekúndum tímatökunnar til Lewis Hamilton hjá McLaren. Hann minnti menn engu að síður á, að Renaultinn hafi verið með hraðskreiðustu bílum á öllum æfingum í Spa.

Kubica telur sig því til alls líklegur þótt hann verði að hefja keppni í þriðja sæti. Á bílinn hefur verið bætt búnaði til að rjúfa loftstraum um afturvænginn en það hefur aukið beinlínuhraða Renaultins mjög. 

Það ásamt aukinni vængpressu í beygjum segir Kubica að bíllinn hafi batnað mjög að getu.

„Við höfum verið samkeppnisfærir við hvaða aðstæður í brautinni sem er.Tímatakan var góð þótt ég hefði ekki tíma í seinni tímahring í lokin vegna gangtruflunar. Ég vonaði því að hann rigndi og það féllu einhverjir dropar, en ekki nógu margir til að koma í veg fyrir að Lewis kæmist upp á fremstu rásröð. En staðan er samt góð,“ sagði Kubica að tímatökunni lokinni.

Hann sagðist afar ánægður með loftrofsbúnaðinn, hann hefði virkað vel og skilað tilætluðum árangri frá fyrsta hring á fyrri æfingunni í gær. 

„Allt getur gerst í kappakstrinum, við höfum séð breytilegar aðstæður hér. Það sem máli skiptir er að ég hef verið meðal fimm fremstu við allar aðstæður á öllum æfingum og svo nú. Ég held Red Bull séu of sterkir fyrir okkur og McLarenbíllinn er mjög fljótur hér líka. En við munum reyna gera okkar besta,“ bætti Kubica við.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is