Hamilton með allt í hendi sér

Hamilton fagnar sigri í Spa. stækka

Hamilton fagnar sigri í Spa. reuters

Lewis Hamilton hjá McLaren náði forystu í ræsingu belgíska kappakstursins og lét hana aldrei af hendi. Hafði fullkomin tök á breytilegum aðstæðum og var sigri hans aldrei ógnað. Með honum tók hann aftur forystu í keppninni um heimsmeistaratitil ökumanna. Annar varð Mark Webber hjá Red Bull og þriðji Robert Kubica hjá Renault.

Hamilton hafði ástæðu til að fagna er hann ók fyrstur yfir marklínuna því hann hélt stöðu sinni þrátt fyrir tvær útkomur öryggisbíls í brautina og þrátt fyrir að lenda utan brautar og þurfa keyra rólega yfir malargryfju eftir að byrjaði að rigna í lokin. Sigurinn er sá þriðji vem hann vinnur á árinu.

Veðurfarið lék stórt hlutverk og breytilegar aðstæður af þeim völdum hleyptu mikilli spennu í keppnina. Stöðubarátta sem af því hlaust snerist þó meira um ökumenn í kringum miðjan hóp og aftar.    

Kubica var í öðru seinni á seinni helmingi kappakstursins en mistök í dekkjastoppi undir lokin urðu þess valdandi að Webber komst fram úr honum. Webber klúðraði ræsingunni og féll strax á fyrstu metrunum úr fyrsta sæti í það fimmta. Smám saman vann hann sig upp á ný og hlaut þriðja sætið í arf frá liðsfélaga sínum Sebastian Vettel.

Vettel í tómu tjóni

Vettel gerði sig sekan um akstursmistök á bremsusvæðinu inn að lokabeygjunni er hann hugðist taka fram úr Jenson Button hjá McLaren sem þá var annar. Tókst Vettel ekki betur til en svo að hann ók á Button svo hann féll úr leik vegna skemmda á McLarenbílnum.

Vettel skaust inn að bílskúr og fékk nýjan framvæng og dekk en var stuttu síðar látinn aka gegnum bílskúrareinina að nýju í refsingarskyni fyrir að hafa valdið árekstri að óþörfu.

Þetta reyndi á taugar Vettels sem sótti full djarft en það endaði með því að hann ók utan í annan bíl. Skemmdi hann og sprengdi dekk hjá sjálfum sér. Þurfti að aka heilan hring á þremur hjólum og féll um skeið niður í síðasta sæti.

Þrír titilkandidatar fengu ekki stig

Fyrir mótið var keppnin um heimsmeistaratitil ökuþóra mjög jöfn og tvísýn og fimm ökuþórar með góða möguleika. Það gjörbreyttist í dag því þrír þeirra fengu engin stig; Button, Vettel og Fernando Alonso hjá Ferrari sem féll úr leik vegna akstursmistaka.

Ók hann upp á glerhála beygjubrík á útleið úr beygju en þar var engin rásfesta svo bíllinn snarsnerist, lenti á vegg og laskaðist svo ekki var fram haldið þótt hann endaði aftur inni á braut. Alonso var á þessu stigi sjöundi og sex hringir eftir, en hann varð fyrir því við lok fyrsta hrings, að Rubens Barrichello hjá Williams ók aftan á hann svo Ferraribíllinn snarsnerist. Við það féll Alonso niður í síðasta sæti og Barrichello komst ekki hring í sínum 300. kappakstri.

Fyrir vikið hafa Hamilton og Webber hlotið sæmilegt forskot á þessa þrjá, en Hamilton hefur 182 stig, Webber 179, Vettel 151, Button 147 og Alonso 139 þegar sex mót eru eftir.

Keppni bílsmiða jafnaðist og hefur Red Bull nú aðeins eins stigs forskot á McLaren, 330:329. Ferrari er með 248 stig og Renault sótti aðeins á Mercedes í keppninni um fjórða sætið. Hefur Mercedes 145 stig en Renault 121.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is