Kubica sáttur við sinn hlut

Kubica fremstur í fylkingu í belgíska kappakstrinum í dag. stækka

Kubica fremstur í fylkingu í belgíska kappakstrinum í dag. reuters

Robert Kubica hjá Renault segist sáttur við þriðja sætið í belgíska kappakstrinum því hann hefði verið heppinn að ljúka keppni eftir atvik á öðrum hring er reynt hefði á taugar hans.

Kubica ók vel við misjafnar aðstæður og var í öðru sæti eftir fyrsta hring. Á næsta hring gerði hann mistök í Rauðvatnsbeygjunni svonefndu, brekkunni miklu snemma hringsins, sem reynst hefðu getað mun dýrkeyptari en að missa Jenson Button hjá McLaren fram úr sér þar.

„Ég sá Lewis [Hamilton hjá McLaren] taka Rauðvatnsbeygjuna vítt og ég var mjög vítt einnig en reyndi að skera hana við innri brún til að taka ekki hraða. En við það missti ég öll tök á bílnum, hann leitaði fyrst til vinstri og síðan til hægri. Ég var heppinn að ná aftur valdi á honum  og geta haldið áfram.  

Þá hafði ég lélega rásfestu við endurræsinguna [eftir fyrri heimsókn öryggisbílsins], læsti hjólum fyrst að framan og svo að aftan,“ sagði Kubica.

Hann missti vegna þessa Sebastian Vettel fram úr sér á fjórða hring en fékk síðan annað sætið aftur við árekstur Buttons og Vettels. Glataði því í hendur Marks Webbers í dekkjastoppi er hann byrjaði að rigna í lokin.


Kubica veitir Hamilton keppni í Spa í dag.

Kubica veitir Hamilton keppni í Spa í dag. reuters

Kubica á Renaultinum á leið til þriðja sætis í Spa, á eftir kemur Massa hjá ...

Kubica á Renaultinum á leið til þriðja sætis í Spa, á eftir kemur Massa hjá Ferrari. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is