Vettel biðst afsökunar

Button með Vettel í skottinu rétt fyrir ákeyrslu þess síðarnefnda. stækka

Button með Vettel í skottinu rétt fyrir ákeyrslu þess síðarnefnda. reuters

Sebastian Vettel hjá Red Bull lýsti óskoraðri ábyrgð á hendur sér á árekstrinum við Jenson Button hjá McLaren undir lok 15. hrings belgíska kappakstursins. Við hann féll heimsmeistarinn Button úr leik.

Vettel freistaði framúraksturs við lokabeygju hringsins en missti vald á bílnum sem skrikaði til hliðanna og endaði á því að stingast inn í bíl Buttons.  Vettel gat haldið áfram keppni eftir að hafa fengið nýjan væng en tjón á silfurör McLaren kom í veg fyrir að Button héldi áfram keppni.

„Ég er leiður yfir þessu, það var auðvitað ekki ætlun mín að eyðileggja kappaksturinn fyrir honum né sjálfum mér. Ég var kominn nálægt honum og hraðskreiðari. Ég hélt að Robert [Kubica hjá Renault] gæti tekið okkur. Nokkrum sinnum komst ég nálægt Button en ekki nóg til að komast fram úr.

Ég reyndi að vinna hann utanvert á bremsusvæ´ðinu en missti vald á bílnum í bremsunni á ójöfnu í brautinni og eftir það hafði ég ekki vald á honum en því miður skall ég á Button,“ sagði Vettel eftir keppnina.

Honum var refsað með akstri gegnum bílskúrareinina en þangað varð hann að fara stuttu seinna með sprungið dekk eftir samstuð við Vitantonio Liuzzi hjá Force India. Vettel kórónaði svo frammistöðu sína með því að velja röng dekk undir bíl sinn fyrir rigninguna í lokin. Hafnaði hann í 15. sæti.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is