Webber kallar eftir forgangsröðun
Mark Webber sagði beinlínis eftir sigur sinn í belgíska kappakstrinum í Spa-Francorchamps í dag, að brátt kæmi að því að Red Bull yrði að gera upp á milli þeirra Sebastians Vettel í keppninni um heimsmeistaratitil ökumanna.
Webber jók bilið á milli þeirra Vettels í stigakeppninni með öðru sæti í dag á sama tíma og Vettel lauk aðeins keppni í 15. sæti. Er Webber með 182 stig en Vettel 151.
Webber og Lewis Hamilton hjá McLaren hafa slitið sig aðeins frá öðrum ökuþórum með fyrsta og öðru sæti í dag. Aðeins þrjú stig skilja þá í sundur en Hamilton er nú 35 stigum á undan liðsfélaga sínum, Jenson Button, og Webber 31 stigi á undan Vettel þegar sex mót eru eftir.
Er Webber var spurður hvort honum fyndist að Red Bull ætti nú að setja hann í fullan forgang í titlbaráttunni sagði ökuþórinn ástralski, að ef liðinu væri alvara í því að leggja McLaren að velli í titilslagnum yrði það líklega að gera slíkar ráðstafanir.
„Það fer eftir því hversu hungraðir við erum í að reyna að vinna titilinn. Mér finnst of snemmt í dag að segja það [að annar ökuþórinn ætti að vera tekinn fram yfir hinn], en kannski er herfræðin önnur samanborið við McLaren. Það er of snemmt að sinni en kannski ekki mjög svo lengur.








