Lauda leiðréttir sig

Niki Lauda. stækka

Niki Lauda. reuters

Niki Lauda vill ekki kannast við gagnrýni sína á Ferrariliðið fyrir liðsfyrirmæli þess í þýska kappakstrinum. Við þeim brugðust fyrrverandi vinnuveitendur hans harkalega og sögðu hann hafa klúðrað gullnu tækifæri til að halda túlanum saman.

Haft var eftir Lauda á opinberri vefsíðu formúlu-1, að hann byggist við því að Ferrariliðið fengi hirtingu hjá íþróttaráði Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) fyrir að ögra dómgreind áhorfenda með því að gera Felipe Massa að gefa eftir forystu í kappakstrinum og hleypa Fernando Alonso fram úr sér í Hockenheim.

Ferrariliðið svaraði af hörku og minnti Lauda á að hann hefði sjálfur notið liðsskipana er hann ók fyrir liðið og ekki leiðst það. Nú neitar Lauda að hafa sagt það sem eftir honum var haft á formula1.com.

„Þessa hluti sagði ég aldrei,“ segir hann við ítalska íþróttadagblaðið Corriere della Sera í dag. „Ég sagði einungis í útsendingu að liðsfyrirmæli væru ekki góð fyrir formúlu-1 og skemmtigildið. Og að lið eins og Red Bull gerði rétt með því að leyfa Webber og Vettel að kljást að vild. Vinsamlega taktu fram að ég var aldrei í neinu viðtali.

Ég myndi leyfa liðsfyrirmæli, en aðeins eftir að annar ökuþóranna er úr leik í titilslagnum,“ segir Lauda. 

Ferrariliðið fagnaði þessum ummælum hans á heimasíðu sinni í dag gegnum dálkahöfundinn „hrossakvísl“. Sá skrifar: „Ég er ánægður með að Niki neitar því að hafa talað svona; það sýnir að það er gott að fylla lungun af fersku lofti.“


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is