Liðin segja of snemmt að veita ökumanni forgang

Webber (t.v.) og Hamilton hafa skapað sér forskot á keppinautana. stækka

Webber (t.v.) og Hamilton hafa skapað sér forskot á keppinautana. reuters

Liðsstjórar bæði Red Bull og McLaren segja alltof snemmt að setja allan kraft á leiðandi ökuþóra liðanna þó svo Mark Webber og Lewis Hamilton hafi slitið sig nokkuð frá keppinautum sínum í belgíska kappakstrinum.

Þegar sex mót eru eftir af vertíðinni hafa báðir meira forskot á liðsfélaga sína en sem nemur mótssigri. Það hefur orðið til þess að hleypa af stað umræðum um að tímabært sé að láta þá njóta forgangs ef ætlunin sé að reyna vinna heimsmeistaratitil ökuþóra.

Webber sagði sjálfur að sú stund nálgaðist óðum fyrir Red Bull að einbeita sér að honum. Það sjónarmið á ekki hljómgrunn enn sem komið er hjá liðsstjóranum Christian Horner.

„Það eru enn 150 stig í pottinum og tveir hafa slitið sig aðeins frá þar sem hinir þrír titilkandidatarnir hlutu ekkert stig. En mér finnst samt of snemmt að íhuga að setja alla áherslu á annan ökumanninn. Allir fimm eiga enn möguleika miðað við stigagjöfina. Bilið getur verið villandi því þótt það virðist vera stórt getur það gjörbreyst í einni svipan,“ segir Horner.

Stallbróðir hans Martin Whitmarsh hjá McLaren er á sama máli og segir Hamilton geta gengið út frá því að liðsfélagi hans Jenson Button njóti áfram sömu meðferðar og hann hjá liðinu.

„Ég fundaði með ökumönnunum í kvöld og Jenson sagði þar við Lewis: „Ég er 35 stigum á eftir þér en ég verð enn að reyna klekkja á þér. Og svoleiðis á það að vera áfram,“ sagði Whitmarsh.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is