Whitmarsh hundskammar Vettel

Button með Vettel í skottinu rétt fyrir ákeyrslu þess síðarnefnda. stækka

Button með Vettel í skottinu rétt fyrir ákeyrslu þess síðarnefnda. reuters

McLarenstjórinn Martin Whitmarsh gagnrýnir Sebastian Vettel hjá Red Bull harðlega fyrir ákeyrsluna sem felldi Jenson Button úr leik í belgíska kappakstrinum. Sagði hann aksturshætti hans ekki ekki í samræmi við kröfur sem gerðar eru til keppenda í formúlu-1.

Vettel missti vald á bíl sínum í keppni við Button um annað sætið í kappakstrinum. Misreiknaði hann bremsupunkt Buttons, snarsneri bíl sínum er hann reyndi að forðast silfurörina en sveigði aftur til baka og ók inn í hlið McLarenbílsins.

Vettel var refsað með akstri gegnum bílskúrareinina og Whitmarsh sagði framferði hans á brautinni ekki upp á marga fiska. „Þetta var eitthvað sem maður býst ekki við að sjá í formúlu-1 - minnir mann meira á lægri formúlurnar,“ sagði Whitmarsh strax eftir kappaksturinn. „Mér fannst gegnumakstursvíti tiltölulega væg refsing,“ bætti hann við.

Whitmarsh segist ekki skilja hvers vegna Vettel kom sér í þessa stöðu í rimmunni við Button sem átti í erfiðleikum vegna tjóns á framvæng. „Þetta voru undarleg mistök hjá honum verð ég að segja. Ég er klár á því að þetta var enginn ásetningur en furðulegt. 

Hafi hann ætlað sér farm að innanverður þá hafði hann ekki meira pláss en þrjár tommur svo guð einn veit hvað flaug í gegnum kollinn á honum. Þetta var svekkjandi, en svona er kappaksturinn, lífið heldur áfram.“


Whitmarsh var óhress með Vettel.

Whitmarsh var óhress með Vettel. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is