Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 2.9.2010
| 16:26
Yngsti reynsluökumaður í sögu formúlu-1
Sextán ára drengur frá Malasíu, Nabil Jeffri, varð í gær yngsti ökuþór sögunnar til að keyra keppnisbíl úr formúlu-1. Sinnti hann þróunarakstri fyrir Lotusliðið á Duxford flugvellinum í Englandi.
Lotus prófaði straumfræði bílsins og vængflata með akstri fram og eftir flugbrautinni. Einnig var líkt eftir þjónustustoppum til að Jeffri gæti áttað sig á hvernig þau virka.
Jeffri keppir í Kyrrahafsröðinni í formúlu BMW en eigandi Lotus og landi hans Tony Fernandes ákvað að gefa honum tækifæri á að prófa formúlu-1 bílinn. Naut hann leiðsagnar ökuþóranna Heikki Kovalainen og Fairuz Fauzy í Duxford.
„Frábær dagur, einn besti dagur um ævina, ég á eftir að lifa lengi á þessu,“ sagði Jeffrey eftir aksturinn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







