Williams einbeitir sér að 2011

Barrichello fær alveg nýjan bíl á næsta ári. stækka

Barrichello fær alveg nýjan bíl á næsta ári. mbl.is/williamsf1

Williamsliðið einbeitir nú öllum kröftum hönnunar- og þróunarsviðs síns að keppnisbíl næsta árs. Lokið er gerð síðustu uppfærslu núverandi bíls og verða þær breytingar teknar í notkun í næstu mótum.

Williams fór laklega af stað á vertíðinni en hefur sótt verulega í sig veðrið. Og með nýjungum sem teknar verða í notkun í kappakstrinum í Singapúr, fimmta síðasta móti ársins,  í septemberlok vonast liðið til að áfram verði slagkraftur í því.

Tæknistjórinn Sam Michael staðfestir að með lokafrágangi íhlutanna fyrir Singapúr sé þróunarvinnu við 2010-bílinn lokið og allur hönnunarkraftur settur í 2011-bílinn. 

Lítið verður sameiginlegt með hönnun bílanna í ár og þess næsta vegna reglubreytinga. Þannig hefur m.a. verið ákveðið að banna tvöfaldan loftdreifir og búnað til að rjúfa vængpressu afturvængs, svonefnda F-trekt. Þá koma dekk til sögunnar frá nýjum framleiðanda, Pirelli, sem verða frábrugðin núverandi dekkjum.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is