Kobayashi hjá Sauber út 2011

Kobayashi með liðsstjóranum Peter Sauber eftir góðan dag. stækka

Kobayashi með liðsstjóranum Peter Sauber eftir góðan dag.

Sauberliðið tilkynnti í morgun, að samningur við ökumanninn Kamui Kobayashi hafi verið framlengdur út næsta ár. „Við njótum nýliðans í liði okkar, bæði sem ökumanns og persónu,“ sagði liðsstjórinn Peter Sauber af þessu tilefni.

Kobayashi, sem er 24 ára, hefur vakið athygli með góðri frammistöðu og baráttuvilja. Og þrátt fyrir að eiga aðeins 15 mót að baki frá upphafi, þar af 13 í ár, hefur hann aflað liði sínu 21 stigs.

„Við höfum aldrei haft nokkrar efasemdir um hann fyrir næsta ár. Kamui hefur staðist allar okkar væntingar hvað hraða og baráttugleði varðar. Þá hefur samstarf hans og verkfræðinganna æxlast mjög vel og tæknilegur skilningur hans aukist mjög.

Sú reynsla sem hann hefur aflað sér á fyrstu fullu keppnistíðinni í formúlu-1 mun gagnast honum vel á næsta ári. Takmark okkar er að leggja honum til hraðskreiðan og endingartraustan bíl strax í byrjun næsta keppnistímabils,“ sagði Sauber.

Kobayashi þreytti frumraun sína í formúlu-1 með Toyotaliðinu í fyrra. Þar var hann reynsluökuþór en hljóp í skarðið sem myndaðist vegna meiðsla Timo Glock og keppti í tveimur síðustu mótum ársins, í Sao Paulo í Brasilíu og í Abu Dhabi. Í seinna mótinu lauk hann keppni í sjötta sæti.

Sauber sagði að beðið yrði með að tilkynna hver yrði liðsfélagi Kobayashi á næsta ári, en spænski ökuþórinn Pedro de la Rosa hefur verið liðsfélagi hans í ár.

Kobyashi í belgíska kappakstrinum í Spa.

Kobyashi í belgíska kappakstrinum í Spa. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is