Ferrari æfði langmest

Rigning var í Barcelona um helgina, er reynsluakstri ársins lauk þar. Hér er Alonso á ... stækka

Rigning var í Barcelona um helgina, er reynsluakstri ársins lauk þar. Hér er Alonso á ferð.

Reynsluakstri formúluliðanna fyrir komandi keppnistímabil lauk í Barcelona um helgina. Og til fyrsta móts, í Melbourne eftir tæpan hálfan mánuð, fer Ferrari með flesta kílómetra undir belti.

Um aksturinn fyrir Ferrari hafa keppnisþórarnir Fernando Alonso og Felipe Massa nær eingöngu séð. Hjá flestum öðrum liðum hefur hann dreifst á fleiri en sömuleiðis hafa ökumenn heimsmeistara Red Bull að nær öllu leyti séð um aksturinn þar á bæ.

Sauberliðið er óvænt í þriðja sæti hvað reynsluaksturskílómetra varðar og munar þar um, að liðið æfði meira en nokkurt annað í lokalotunni í Barcelona.

Brösuglega hefur gengið hjá McLaren og aðeins þrjú lið hafa ekið minna, þau hin sömu og mættu til leiks í fyrra í fyrsta sinn.

Niðurstaðan er annars sem hér segir:

Lið Heildar km Hringir
Ferrari 6930 1551
Red Bull 6120 1370
Sauber 5914 1316
Mercedes 5819 1295
Force India 5430 1225
Toro Rosso 5347 1193
Renault 5022 1124
Williams 4970 1116
McLaren 4714 1063
Virgin 4297 994
Lotus 4083 907
Hispania 1945 444
Samtals 60.636 13.578
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is